Home » Eagle Eye Networks á Íslandi

Eagle Eye Networks á Íslandi

Skýjalausn

 

Öryggismyndavélar eftirlitsmyndavélakerfi

 

 

Eagle Eye býður upp á vandaðar IP myndavélar sem vista allt myndefni í skýið. Þú stjórnar öllum vélum frá skýinu og þarft ekki að hafa neinar áhyggjur að harður diskur í upptökustöðinni þinni bili.

Með Eagle Eye Networks getur þú líka breytt gamla myndavélakerfinu þínu í öflugt greiningatæki (AI) og fært kerfið í öfluga og hraðvirka skýjalausn. Allar myndavélar í þínu kerfi geta skynjað hreyfingu, line crossing, talið fólk og séð númeraplötur vegna þess að greiningin fer fram í skýjalausninni. Þú stjórnar kerfinu úr síma, spjaldtölvu eða úr tölvu. Mjög einfalt að stofna notendur, stilla réttindi og ákveða hver fær að sjá myndefni úr hvaða vélum. Einfalt að senda myndefni til t.d. lögreglu beint úr skýinu, þú velur myndbútinn og kerfið sendir viðkomandi link á videoið í skýinu. Hentar öllum fyrirtækjum og sérstaklega húsfélögum. Kerfið hentar mjög vel þeim sem eru með starfsemi í mörgum byggingum eða á mörgum stöðum á landinu.

 

 

Brú

 

Til að tengjast skýja lausninni þarf “brú” (e. bridge) en hún tengir þínar myndavélar við skýið og stjórnar bandvíddinni.
Brúin er með 24-48 tíma buffer ef netsamband dettur niður.
Ekkert hreyfanlegt í tækinu.
Styður frá 20 til 50 myndavélar.
Tengist staðarneti og router.

Í boði er brú sem styður bæði IP og Analog vélar.

 

 

Eagle Eye Smart Video Search

 

Með Smart video search er hægt að leita að myndefni með því að slá inn leitarorð, t.d. blue car, person with backpack, toyota eða bílnúmer o.s.frv. Leitin virkar eins og þú leitar á netinu með t.d. google leitarvélinni. Þú notar sama vélbúnaðinn, sömu gömlu myndavélarnar, eina sem þarf er tenging við skýjaþjónustu Eagle Eye Networks.

Myndgreining og tölfræði

Myndgreining eins og skynjun á hreyfingu, bílnúmeri, line crossing, talning o.fl. fer fram í skýjalausninni en ekki í myndavélinni. Þú getur því t.d. lesið bílnúmer í gömlu myndavélinni þinni sem hefur ekki myndgreiningu. 

Það sem er í boði:

  • Line crossing
  • Intrusion detection
  • Object counting
  • Loitering
  • Camera tampering
  • License plate recognition
  • Counting

Innbrotavörn

Hægt er að nota myndavélina sem innbrotavörn og láta hana senda boð ef einhver kemur inn á svæði á skilgreindum tíma. Skilaboð koma í tölvupóst og sem push notification í síma.

Samskiptalausn, “talk down”, live remote audio.

Með “talk down” er hægt að hafa tala í gegnum myndavélakerfið beint í gegnum appið. Eina sem þarf er IP tengdur hátalari sem virkar með Eagle Eye búnaðinum.

Þú getur varað við hættu, sagt almenna tilkynningu eða hrætt óboðna gesti í burtu.

display station

Local Display Station.

Það er auðvelt að setja upp stóran skjá með mynd úr kerfinu. Eagle Eye býður upp á tvær mismunandi “display stations” sem tengist skýinu og þú velur hvaða myndavélar eiga að sjást á skjánum.

DS100 styður 1x1080p með allt að 32 myndavélum.

DS200 styður 1x4k eða 2x 1080p með allt að 64 myndavélum.

Nánari upplýsingar: Display Stations pdf

 

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar

info@seavis.is